Keilusamband Íslands (KLÍ) var stofnað árið 1992 en áður höfðu verið starfrækt nokkur keilufélög og -deildir auk Keilunefndar ÍSÍ (KNÍSÍ) sem var fyrsti vísir að KLÍ eins og það starfar í dag. Tilgangur KLÍ er að hafa yfirumsjón með keiluíþróttum innan ÍSÍ og að vinna að eflingu íþróttarinnar á Íslandi. Sambandið er æðsti aðili um öll keilumál innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).
Auk ÍSÍ er sambandið aðili að Evrópukeilusambandinu (ETBF) og þannig Alþjóða keilusambandinu (World Bowling).
Frekari upplýsingar
Greiðslur til KLÍ
0115-26-010520
kt. 460792-2159
Vinsamlegast sendið tilkynningu á [email protected], með skýringu ef greitt er fyrir annan en þann sem millifærir.
Komdu í keilu!
Kynntu þér hvar má spila keilu og upplýsingar um æfingar á vegum keilufélaganna.