1. grein
Öll keppni í viðurkenndum keilumótum skal fara fram samkvæmt lögum og reglugerðum ÍSÍ og Keilusambands Íslands (KLÍ) og leikreglum sem samþykktar hafa verið af KLÍ. Samþykktir Alþjóðakeilusambandsins (WB) eru bindandi fyrir KLÍ.
Mótum skal skipt í þrjá hópa.
- A-mót: Mót á vegum KLÍ og önnur mót sem til þess hafa hlotið samþykki KLÍ.
- B-mót: Önnur viðurkennd mót sem eiga að fara inn í allsherjarmeðaltal.
- C-mót: Mót sem fara ekki inn í allsherjarmeðaltal.
Keilufélögin geta sótt um að mót á þeirra vegum verði A-mót, t.d. héraðsmót. A-mót þarf að auglýsa með a.m.k. mánaðar fyrirvara og reglurnar um mótið skulu liggja fyrir er umsókn er send inn. A- og B-mót skal einungis leika í keilusal sem KLÍ hefur viðurkennt.
2. grein
Leikár telst frá 1. júní til 31. maí.
3. grein
Einungis met sett í A- og B-mótum eða met sett í mótum erlendis sem stjórn KLÍ viðurkennir verða viðurkennd sem Íslandsmet.
4. grein
Í einstaklings-, para- og tvímenningskeppni geta allir innlendir sem erlendir félagsbundnir keilarar verið þátttakendur. Þó þurfa erlendir ríkisborgarar að hafa haft lögheimili hér á landi síðustu þrjá mánuði fyrir mót til að öðlast keppnisrétt.
Efsti íslenski ríkisborgarinn öðlast keppnisrétt fyrir hönd þjóðar fyrir sigur í einstaklingsmótum.
5. grein
Ef lið notar leikmann sem er í banni eða hefur ekki leikheimild með liði, skal skori hvers leiks breytt á þann veg, líkt og leikmaðurinn hafi ekki leikið viðureignina. Stjórn KLÍ getur afturkallað keppnisheimild einstaklings/félags vegna vangoldinna skulda við KLÍ.
6. grein: Erlendir leikmenn
Erlendur ríkisborgari getur gerst leikmaður með íslensku keiluliði. Um félaga- og liðaskipti erlendra leikmanna, sem leikið hafa með íslensku liði, gilda reglur KLÍ.
7. grein: Tækninefnd
Um aðstæður á keppnisstað (t.d. ástand brauta), kúlur og hjálpartæki leikmanna gilda reglur IBF/ETBF/KLÍ.
Sérákvæði Íslands er að leyfa aukagöt í kúlum, hafi þær verið boraðar fyrir 1.8.20. Almennt eru reglur erlendis þannig að aukagöt eru ekki leyfð.
8. grein: Þátttökugjöld – skráningarfrestur
Þegar leikmenn skrá sig í mót skuldbinda þeir sig um leið til að greiða þátttökugjald, nema þeir afskrái sig áður en skráningarfrestur rennur út. Leikmaður sem hefur skráð sig í mót fær ekki að taka þátt í öðrum mótum KLÍ fyrr en hann hefur greitt þátttökugjaldið. Undanþágu skal veita leikmanni sem sendir mótanefnd skriflega útskýringu á því hvers vegna hætt var við þátttöku, og þá aðeins ef mótanefnd telur ástæðuna fullnægjandi.
9. grein: Flokkamót
Í mótum þar sem keppendum er skipt í flokka miðað við getu skal enginn keppa í lægsta flokki nema hann hafi til þess skráð meðaltal. Byrjendum sem aldrei hafa áður eignast skráð meðaltal má þó raða í neðsta flokk fram að útgáfu næsta allsherjarmeðaltals. Þeir sem taka þátt í forgjafarmóti og hafa ekki skráð meðaltal skulu nota 120 stig við útreikning á forgjöf.
10. grein: Reykingar
Í A- og B-mótum er öll notkun tóbaks bönnuð (það innifelur reykingar og notkun rafretta óháð hvort tóbak sé í rafrettunni). Bannið hefst við upphitun.
Viðurlög vegna brots á 1. mgr. í móti, er að viðkomandi fær núll í viðkomandi leik þegar brotið fer fram eða núll í næsta leik á eftir ef brotið á sér stað í upphitun eða á milli leikja í leikjaröð,
11. grein: Feilvarsla
Mótshaldari getur ákvarðað aðra framkvæmd á feilvörslu og skipun refsilínudómara, en um er getið í reglu 4.20 í almennum keppnisreglum KLÍ.
12. grein: Brautarmeðhöndlun
Í A og B mótum skal liggja fyrir í mótsreglum hvernig olíuburði skal háttað.
13. grein: Bráðabani
Þegar leikinn er bráðabani til að skera úr um úrslit í liðakeppni er ekki heimilt að skipta inn leikmanni. Í liðakeppnum skal leika 9. og 10. ramma, sé enn jafnt er eitt upphafskast á hvern leikmann. Í einstaklings- og parakeppnum er Roll off þ.e. eitt upphafskast á mann.
14. grein: Tímamörk
Til þess að halda réttum hraða í spilamennskunni verða leikmenn að mæta leikmanninum sem þeir leika á eftir þegar hann/hún kemur niður af stikbrautinni. Þeir skulu vera við „kúlurekkann“ innan 5 sekúnda frá því að undanfarandi keilari er kominn af stikbrautinni. Leikmenn eiga ekki að bíða eftir meira en 2 leikmönnum áður en þeir kasta (einum til hvorrar hliðar). Leikmaður skal hefja atrennu innan 30 sekúnda frá því hann stígur upp á stikbrautina og koma niður af stikbrautinni innan 10 sekúnda frá því að kúlan snertir keilurnar.
15. grein: Búningar
Allir leikmenn liðs skulu vera í eins keppnistreyjum af sama lit og sömu gerð. Leikmenn mega vera í síðbuxum, pilsum eða stuttbuxum af sama lit en allir leikmenn liðs í klæðnaði af sömu gerð. Brot á ákvæði þessu varðar sekt skv. gjaldskrá KLÍ.
Í A-mótum, sem og öllum mótum sem sjónvarpað er frá, er óheimilt að leika í gallabuxum.
Sé einhver þannig klæddur að ósæmilegt megi teljast, getur mótstjóri/dómari bannað honum að keppa, nema ráðin sé bót á því.
16. grein: Fjarvera leikmanna
Seinir leikmenn fá 0 fyrir hvern þann ramma sem þeir missa af. Leikmaður sem yfirgefur leik fær 0 fyrir þá ramma sem hann lýkur ekki. Þó er heimilt að skipta öðrum leikmanni inn á ef leikmaður yfirgefur leik vegna meiðsla. Leikirnir skulu ekki reiknast inn í meðaltal.
Ekkert fjarveruskor er veitt.
17. grein: Frestanir
Ef lið fær frestun, þá má það aðeins nota þá leikmenn sem löglegir voru með liðinu, þegar upphaflegi leiktíminn stóð yfir.
18. grein
Þegar leiknir eru fleiri en 3 leikir í leikjaröð skal skipt um brautarpar eftir hverja 2 leiki eða örar, nema reglur móts kveði á um annað.
Þegar keppendur eru aðeins að spila á tveim settum, en þurfa að spila 6 leiki, þá eiga þeir að spila 3+3 leiki á settunum tveimur til að það komi sem jafnast niður á keppendurna.
19. grein: Upphitun
Upphitun í keilumótum skal almennt vera eftirfarandi:
2-4 keppendur á setti – 5 mínútur
5 og fleiri keppendur á setti – 10 mínútur að lágmarki
Mótsstjóra er heimilt að lengja eða stytta upphitun.
20. grein
Ef fresta þarf leik skal hefja hann aftur frá þeim stað í leiknum, sem hann var þegar fresta þurfti.
21. grein
Aga- og úrskurðarnefnd fjallar um brot á reglugerð þessari nema sérstaklega sé kveðið á um annað. Þó getur aga- og úrskurðarnefnd falið skorritara KLÍ að sekta fyrir brot gegn 1. mgr. 16. gr. gangist lið við broti.
Aga- og úrskurðarnefnd skal leita umsagnar tækninefndar KLÍ vegna brota á 7. gr.