1. grein
Í upphafi hvers keppnistímabils skal KLÍ skipa meðalskorritara, einn eða fleiri, sem starfi frá 1. júní til 31. maí.
2. grein
Allsherjarmeðaltal skal halda yfir öll mót sem haldin eru innan vébanda KLÍ. Allsherjarmeðaltal er meðaltal síðustu 100 leikja. Að auki skal reikna út mánaðarmeðaltal, meðaltal leikárs (1. júní til 31. maí) og meðaltal almanaksárs.
3. grein
A-mót þarf að auglýsa með a.m.k. mánaðar fyrirvara og reglurnar um mótið skulu liggja fyrir er umsókn er send inn (sjá nánar í Reglugerð KLÍ um keilumót).
Eigi B-mót að koma inn í allsherjarmeðaltal skal umsókn þar um ásamt reglum mótsins send KLÍ minnst 14 dögum fyrir fyrsta leikdag.
Á umsókninni skulu vera upplýsingar um leikfyrirkomulag, leikstað, leiktíma og mótsstjóra.
KLÍ skal m.a. hafa samráð við mótanefnd og tækninefnd áður en hún samþykkir mótið.
Allir leikir í mótinu, jafnt úrslitaleikir sem aðrir leikir, verða reiknaðir inni í meðalskorið.
4. grein
Einungis met sett í mótum sem koma inn í allsherjarmeðaltal og met sett í mótum erlendis
sem uppfylla kröfur FIQ/WTBA og KLÍ, skulu viðurkennd sem Íslandsmet.
Í mótum innanlands skal liggja fyrir skýrsla dómara/mótsstjóra sem staðfesting á meti og jafnframt skal leitað álits tækninefndar.
Þeir sem vilja fá met sett erlendis viðurkennd þurfa að leggja fram skriflega staðfestingu
mótshaldara.
5. grein
Mótsstjórar skulu koma leikskýrslum og skorblöðum til skrifstofu KLÍ innan viku frá lokum leiks. Á leikskýrslunum skulu vera fornöfn, eftirnöfn og kennitölur allra leikmanna, brautarnúmer, skortölur, heiti móts og dagsetning. Vanda skal alla skrift á blöðin.
Úr A- og B-mótum skal skila niðurstöðum á tölvutæku formi samkvæmt skilgreiningu KLÍ.
Ekki skal skila inn leikjum sem innihalda fjarveruskor eða merkja þá sérstaklega.
Meðalskorritara er óheimilt að skrá skor leikmanns sem ekki hefur leikheimild.
6. grein
Meðalskorritarar skulu birta allsherjarmeðaltal á mánaðar fresti, og innan tveggja vikna
frá lokum tímabilsins sem meðaltalið sem birta á nær til.
Meðaltalslisti skal vera til staðar í hverjum keilusal og eitt eintak skal afhent KLÍ.
Breytt af stjórn KLÍ 11. apríl og staðfest á formannafundi 25. apríl 2007