Þá hafa Dagný og Steinþór lokið keppni hér í Duisburg. Dagný spilaði í morgunn og átti sinn besta dag, endaði með 1530. Hún endaði í 22. sæti með 187,63 í meðaltal. Steinþór spilaði svo eftir hádegi og hann átti einnig sinn besta dag og spilaði 1621. Hann endaði i 20. sæti með 199,5 í meðaltal. Á morgunn leika svo átta efstu til úrslita. Nánar á heimasíðu mótsins.
Við biðjum kærlega að heilsa heim.