Í kvöld kl. 19.00 hefjast í Keiluhöllinni undanúrslit í Íslandsmóti liða. Í undanúrslitum mætast þau lið sem voru í 1. og 4. sæti annarsvegar og 2. og 3. sæti hinsvegar. Tvær viðureignir eru leiknar, í kvöld og annað kvöld, og er leikið með hefðbundnu sniði, þar sem 20 stig eru í boði í hvorri viðureign. Þau lið sem hafa fleiri stig samanlagt eftir viðureignirnar halda áfram í úrslitin sem leikin eru í næstu viku.
Eftirtalin lið leika til úrslita:
Sæti | Kvennaflokkur | Karlaflokkur | |
1. | KFR-Valkyrjur | ÍR-PLS | |
2. | KFR-Afturgöngur | KR-A | |
3. | ÍR-TT | ÍR-KLS | |
4. | KFR-Skutlurnar | KFR-Lærlingar |
Hér að neðan má sjá hvernig brautaskipan er
Mánudagur
Brautir | Heimalið | Gestir | |
1 – 2 | KFR-Valkyrjur | – | KFR-Skutlurnar |
3 – 4 | KFR-Afturgöngur | – | ÍR-TT |
5 – 6 | ÍR-PLS | – | KFR-Lærlingar |
7 – 8 | ÍR-KLS | – | KR-A |
Þriðjudagur
Brautir |
Heimalið | Gestir | |
1 – 2 | KFR-Lærlingar | – | ÍR-PLS |
3 – 4 | KR-A | – | ÍR-KLS |
5 – 6 | KFR-Skutlurnar | – | KFR-Valkyrjur |
7 – 8 | ÍR-TT | – | KFR-Afturgöngur |