Um helgina fóru fram 10 leikir í 16 manna úrslitum karla og kvenna í Sjóvá mótinu og einn leikur úr 32 manna úrslitum karla. Sigfríður Sigurðardóttir KFR spilaði best í kvennaflokki eða 686 og Halldór Ragnar Halldórsson ÍR spilaði best í karlaflokki þegar hann spilaði 739.
Dregið verður í 8 manna úrslit karla og kvenna á þriðjudagskvöld 20. mars á undan keppni í Deildarbikar liða, en 8 manna úrslitin fara fram 24., 25. og 31. mars og undanúrslit og úrslit fara fram 1. apríl.
Úrslit leikja í karlaflokki:
- Stefán Claessen 634 – Þórarinn Már Þorbjörnsson 474
- Snæbjörn B. Þormóðsson 579 – Árni Geir Ómarson 668
- Valgeir Guðbjartsson 651 – Bragi Már Bragason 621
- Atli Þór Kárason 550 – Halldór Ragnar Halldórsson 739
Úrslit leikja í kvennaflokki:
- Ragna Matthíasdóttir 540 – Sigurlaug Jakobsdóttir 549
- Guðrún Arnarsdóttir 530 – Sigfríður Sigurðardóttir 686
- Guðný Gunnarsdóttir 520 – Helga Sigurðardóttir 552
- Ragna Guðrún Matthíasdóttir 537 – Sigríður Klemensdóttir 539
- Dagný Edda Þórisdóttir 540 – Ágústa Þorsteinsdóttir 526
- Linda Hrönn Magnúsdóttir 596 – Magna Ýr Hjálmtýsdóttir 512 (leikurinn fór fram 13.03.07)
- Laufey Sigurðardóttir 471 – Sirrý Hrönn Haraldsdóttir 531