1. grein
Mótanefnd skal skipuð a.m.k. þremur mönnum tilnefndum af KLÍ og skal formaður nefndarinnar skipaður sérstaklega.
2. grein
Mótanefnd skal í samræmi við gildandi reglur hafa yfirumsjón og eftirlit með framkvæmd Íslandsmóta, sem og annarra móta og kappleikja, sem haldin eru af KLÍ.
3. grein
Formaður mótanefndar boðar til funda í mótanefnd. Þó skal ætíð halda fundi í mótanefnd,
ef einhver nefndarmanna eða aðili í stjórn KLÍ óskar þess.
4. grein
Mótanefnd getur tekið ákvarðanir ef meirihluti nefndarmanna eru þeim samþykkir.
5. grein
Við fundi mótanefndar skal færð fundargerðarbók og skal afrit fundargerðar sent KLÍ.
6. grein
Verkefni mótanefndar eru:
a) að gera tillögur að skipulagi móta á keppnistímabilinu.
b) að auglýsa og sjá um framkvæmd Meistarakeppni KLÍ.
c) að auglýsa og sjá um framkvæmd Bikarkeppni 3ra manna liða.
d) að auglýsa og sjá um framkvæmd Íslandsmóts 3ra manna liða.
e) að auglýsa og sjá um framkvæmd Deildarbikars liða.
f) að auglýsa og sjá um framkvæmd Íslandsmóts para.
g) að auglýsa og sjá um framkvæmd Íslandsmóts einstaklinga.
h) að auglýsa og sjá um framkvæmd Íslandsmóts í tvímenningi.
i) að auglýsa og sjá um framkvæmd annara móta á vegum KLÍ.
j) að taka ákvarðanir um frestun eða niðurfellingu leikja.
k) að sjá um útgáfu mótaskrár KLÍ. Skal hún koma út áður en Íslandsmót liða hefst.
l) að bera ábyrgð á að staða og úrslit í mótum séu gerð opinber sem fyrst eftir að umferð/móti lýkur.
7. grein
Mótanefnd auglýsir eftir og tekur við þátttökutilkynningum fyrir Íslandsmót og Bikarkeppni. Keppnisdaga í Íslandsmótum skal auglýsa með minnst mánaðar fyrirvara í mótabók/vef KLÍ og/eða á töflum í keilusölunum. Jafnframt skal öllum keilufélögum/keiludeildum send samsvarandi tilkynning.
Ef þátttaka er ekki næg eða einhver önnur ástæða kemur í veg fyrir að mót verði haldið, getur mótanefnd í samráði við stjórn KLÍ fell mótið niður.
8. grein
Mótanefnd skal vinna að skipulagi móta KLÍ. Mótafyrirkomulag skal sent stjórn KLÍ til samþykktar, eigi síðar en 1. júní ár hvert. Skipulag þetta skal unnið í samstarfi við landsliðsnefnd, unglinganefnd og keilufélögin. Dagskrá vetrarins skal vera kynnt eigi síðar en 15. ágúst ár hvert. Kynningin skal fara fram á vef sambandsins og send keilufélögunum.
9. grein
Mótanefnd getur veitt mönnum undanþágu frá greiðslu þátttökugjalds í mótum sem haldin
eru af KLÍ sem þeir hafa skráð sig í en ekki mætt til. Skal leikmaður skila til mótanefndar, innan 48 klukkustunda frá lokum viðureignar eða móts, skriflegri útskýringu á ástæðu þess
að hann mætti ekki til keppni, og skal mótanefnd meta hvort hún teljist fullnægjandi.
10. grein
Mótanefnd skal skila skýrslu um starfsemi sína til KLÍ innan mánaðar frá lokum keppnistímabilsins.
Breytt á formannafundi KLÍ 29. apríl 2010
Breytt á formannafundi KLÍ 13.maí 2018