1. grein
KLÍ skal skipa þriggja manna unglinganefnd. Formaður nefndarinnar skal skipaður sérstaklega.
2. grein
Nefndin skal fylgjast með unglingastarfsemi innan keilufélaganna og vera þeim innan handar við uppbyggingu starfsins. Unglinganefnd skal vera félögum og þjálfurum til aðstoðar við öflun kennslugagna og leiðbeininga, sé þess óskað.
3. grein
Unglinganefnd skal auglýsa og sjá um framkvæmd unglingamóta á vegum KLÍ ásamt mótanefnd og skulu þær skipuleggja leikdaga í sameiningu (sjá Reglugerð um mótanefnd).
4. grein
Unglinganefnd skal halda fundargerðir og skrá þar ákvarðanir sínar.
Breytt á formannafundi 29. apríl 2010
Breytt á formannafundi 13. maí 2018