Einar Már Björnsson leikmaður ÍR er þessa dagana að taka þátt í AMF Heimsbikarmóti einstaklinga í Hermosillo í Mexíkó. Einar vann sér inn þátttökurétt á mótinu með því að sigra forkeppni AMF hér heima en lokaúrslit fóru fram í maí á þessu ári.
Þetta er í fyrsta sinn sem Einar Már vinnur sér inn þátttökurétt á þessu móti og verður spennandi að sjá hvernig nýbakaður Íslandsmeistari úr Íslandsmóti para stendur sig á mótinu. Nánari fréttir verða fluttar af gengi hans hér á síðunni næstu daga.
Fylgjast má með öðrum upplýsingum úr mótinu á vefsíðu þess.
YouTube rás AMF heimsbikarmótsins.
Facebook síða AMF World Cup.