Small nations cup lauk í San Marino í gær. Þetta er í fyrsta skipti sem mótið er haldið. Ísland átti 4 keppendur á mótinu.
Það voru Arnar Davíð Jónsson, Björn G. Sigurðsson, Dagný Edda Þórisdóttir og Magna Ýr Hjálmtýsdóttir. Með þeim í för voru Hafþór Harðarson þjálfari afrekshóps kvenna og þjálfarar afrekshóðps karla, þeir Guðjón Júlíusson og Ásgrímur H. Einarsson
Árangur okkar fólks var mjög góður. Alls unnust 6 verðlaun á mótinu en aðeins Malta vann fleirri verðlaun eða 9. Eftirtalin verðlaun unnust:
Arnar Davíð og Magna brons í parakeppni
Björn og Arnar Davíð silfur í tvímenningi karla
Magna Ýr og Dagný Edda gull í tvímenningi kvenna
Brons í keppni blandaðara liða (tvær konur og tveir karlar)
Magna Ýr brons í Master finals (fjórir meðaltalshæstu konurnar í mótinu léku til úrslita)
Arnar Davíð gull í Master finals (fjórir meðaltalshæstu karlarnir í mótinu léku til úrslita)
Mótið tókst mjög vel undir frábærri stjórn Valgeirs Guðbjartssonar mótsstjóra og stjórnarmanns í ETBF.