Nú er tvímenning lokið á Evrópumóti unglinga 2024 í Helsinki í Finnlandi.
Strákarnir hófu leik í gær, 27.mars og stóðu sig einstaklega vel.
Ásgeir Karl og Matthías Leó hófu daginn og áttu fína leiki en náðu sér aldrei almennilega á skrið.
Ásgeir spilaði 1153 í 6 leikjum og Matthías spilaði 1224.
Tvímenningur |
Leikur 1 |
Leikur 2 |
Leikur 3 |
Leikur 4 |
Leikur 5 |
Leikur 6 |
Samtals |
Meðaltal |
||
Matthías Leó |
186 |
228 |
198 |
202 |
218 |
192 |
1224 |
204,00 |
||
Ásgeir Karl |
179 |
210 |
226 |
181 |
165 |
192 |
1153 |
192,17 |
||
365 |
438 |
424 |
383 |
383 |
384 |
2377 |
198,08 |
22.sæti |
||
Í seinni riðli spiluðu Mikael Aron og Tristan Máni saman og áttu þeir virkilega góða leiki.
Þeir voru aðeins 19 pinnum frá því að koma sér í undanúrslit í tvímenning og hársbreidd frá medalíu. Þetta er besti árangur Íslands í tvímenning stráka á Evrópumóti unglinga frá upphafi.
Mikael átti seríu uppá 1414 pinna í 6 leikjum og Tristan spilaði 1199.
Tvímenningur |
Leikur 1 |
Leikur 2 |
Leikur 3 |
Leikur 4 |
Leikur 5 |
Leikur 6 |
Samtals |
Meðaltal |
||
Tristan Máni |
193 |
184 |
226 |
162 |
234 |
200 |
1199 |
199,83 |
||
Mikael Aron |
223 |
228 |
231 |
216 |
258 |
258 |
1414 |
235,67 |
||
416 |
412 |
457 |
378 |
492 |
458 |
2613 |
217,75 |
5.sæti |
||
Í dag, 28.mars byrjuðu stelpurnar að spila.
Olivia og Viktoría Hrund byrjuðu daginn af krafti en náðu ekki að halda sér í sama formi og í einstaklingskeppninni. Olivia spilaði 1097 í 6 leikjum og Viktoría spilaði 1055.
Tvímenningur |
Leikur 1 |
Leikur 2 |
Leikur 3 |
Leikur 4 |
Leikur 5 |
Leikur 6 |
Samtals |
Meðaltal |
||
Viktoría Hrund |
210 |
177 |
132 |
180 |
174 |
182 |
1055 |
175,8 |
||
Olivia Lindén |
136 |
187 |
194 |
185 |
201 |
194 |
1097 |
182,8 |
||
346 |
364 |
326 |
365 |
375 |
376 |
2152 |
179,3 |
25.sæti |
||
Bára Líf og Særós Erla spiluðu svo í seinna holli og voru þær með fínustu spilamennsku.
Særós náði ekki að fylgja eftir því sem hún gerði í einstaklingskeppninni en náði þó góðum leikjum og endaði með 914 í 6 leikjum.
Bára náði heldur betur að bæta sitt skor frá því í einstaklingskeppninni og spilaði 1018 og bætti Íslandsmet í 3, 4 og 5 leikjum í 11-12 ára flokki stúlkna.
Tvímenningur |
Leikur 1 |
Leikur 2 |
Leikur 3 |
Leikur 4 |
Leikur 5 |
Leikur 6 |
Samtals |
Meðaltal |
||
Særós Erla |
140 |
150 |
172 |
130 |
144 |
178 |
914 |
152,3 |
||
Bára Líf |
178 |
172 |
203 |
154 |
160 |
151 |
1018 |
169,7 |
||
318 |
322 |
375 |
284 |
304 |
329 |
1932 |
161,0 |
31.sæti |
||
Þá er bara liðakeppnin og masterskeppnin eftir. Liðakeppni er spiluð þannig að fyrstu 3 leikir hjá báðum kynjum eru spilaðir á morgun, 29. mars og seinni 3 leikirnir spilaðir 30. mars. Í masterskeppni eru efstu 16 í All-Event sem komast áfram og spilað er maður á mann. Mikael Aron er næst úrskurði strákamegin en honum vantar bara 19 pinna til að komast inn. Viktoría er næst úrskurði stelpumegin og er hún 155 pinnum frá.
Liðakeppni á morgun og verður hægt að fylgjast með í beinu streymir hér:
Stöður og dagskrá o.fl. er hér:
ÁFRAM ÍSLAND!