Arnar Davíð Jónsson KFR varð í 2. sæti í einstaklingskeppninni á Norðurlandamótinu í keilu sem fram fer í Noregi þessa dagana. Arnar Davíð spilaði 1.371 í sex leikjum sem gera 228,5 í meðaltal. Andri Freyr endaði í 6. sæti og þeir Einar og Guðlaugur í 14. – 15. sæti. Glæsilegur árangur hjá Arnari Davíð.
Uppfært!
Arnar Davíð gerði sér síðan lítið fyrir og henti í einn 300 leik í liðakeppninni. Tók hann þann leik í öðrum leik liðsins. Samtals spilaði hann 213 – 300 – 204 = 717
Úrslit urðu annars sem hér segir:
Arnar Davíð 209-221-256-223-203-259 – 1371
Andri Freyr 178-188-198-201-231-253 – 1249
Einar S 172-191-191-204-187-190 – 1135
Guðlaugur 200-175-176-173-209-178 – 1111
Katrín 127-183-162-184-153-172 – 981
Hafdís 180-169-130-178-170-150 – 977
Nánari upplýsingar á vef mótsins.