Í kvöld fyrir leik í 1.umferð kvenna og nokkurra karla í Egilshöll, var dregið í 32. liða úrslit bikarkeppni KLÍ 2015 til 2016. Leikirnir í Reykjavík verða 12. október en eftir er að setja á leik ÍA annarsvegar og Þórs hinsvegar.
Drátturinn fór sem hér segir:
- ÍA B – KFR Folarnir
- Þór Víkingur – KFR Lærlingar
- KFR Döff – Þór Plús
- KFR Grænu töffararnir – KFR JP Kast
- ÍR L – KR E
- ÍR Broskarlar – ÍR KLS
- ÍR PLS – Þór
- ÍR Fagmaður – ÍR Keila.is
- KFR Þröstur – KR D
25 lið eru skráð til leiks og þarf því að fækka um 9 fyrir næstu umferð og verða því 18 lið dregin upp úr pottinum í þetta sinn og fara því bikarmeistarar síðasta árs og 6 önnur lið beint í 16 liða úrslitin.
Nýjungar í ár eru að spilað er í 3ja manna liðum og það lið sem fyrr er dregið fær heimaleikinn sama í hvaða deild það er.