Í gær fór fram Meistarakeppni KLÍ sem að er byrjun á tímabilinu hjá keilunni.
Þar mætast Íslands- og Bikarmeistarar frá síðasta tímabili til að starta nýju tímabili.
Í ár var spilað upp á Akranesi og eru tenglar inn á leikina hér neðar í fréttini,
Í ár mættust í kvennaflokk KFR Valkyjur sem að eru bæði Íslands- og Bikarmeistarar 2021
og ÍR TT sem að lentu í 2. sæti í deild og bikar. Þær höfðu hefnd að hefna eftir að hafa tapað fyrir þeim á báðum vígstöðum en í kvöld sýndu KFR Valkyjur að þær eru að koma láta í sér heyra í vetur.
Í kvöld unnu KFR Valkyrjur – ÍR TT eftir æsispennandi leiki 1.507-1.395
Eftir kvennaleikin fór fram úrslit í karlaleiknum og var búist við hörku spennandi.
Í leik Meistarakeppni KLÍ hjá körlum voru það ÍR PLS sem að unnu bæði deild og bikar og
KFR Stormsveitin sem urðu í 2. sæti í bikar og bikar sem mættust.
Leikir fóru þannig að KFR Stormsveitin náði að vinna 1.868 – 1.795
Hægt er að nálgast útsendingu frá kvennaleiknum inn á síðu ÍA Keila
Hægt er að nálgast útsendingu frá karlaleiknum inn á síðu ÍA Keila