Nú er komin niðurstaða í árskortin.
Kortin kosta kr. 79.900,- og ef greiðslum er dreyft yfir árið þá er það kr. 8.000,- á mánuði. Hægt verður að kaupa kortin beint í afgreiðslu Keiluhallarinnar eða hjá félögunum. Settur verður upp kortaskanni í afgreiðsunni þar sem keilari sannar deili á sér við mætingu. Discokeila verður einungis á finntudagskvöldum. Árskortahafar þurfa ekki að víkja fyrir annarri umferð almennings. Eigendur Keiluhallarinnar stefna jafnframt á að seld verði 3 mánaða kort og 6 mánaða kort, en þessar tegundir verða kynntar síðar.