Fyrsti keppnisdagur á Evrópumóti ungmenna í keilu 2015 var í dag sunnudaginn 29. mars og hófst hann á tvímenningi. Hlynur Örn Ómarsson og Alexander Halldórsson, báðir úr ÍR, hófu leik snemma í morgun. Voru þeir mjög jafnir í spilamennskunni og enduðu með 193 í meðaltal. Hlynur spilaði 1.152 eða 192,00 í meðaltal og Alexander var með 1.167 pinna eða 194,5 í meðaltal. Alexander setti persónulegt met í 4 og 5 leikjum, 828 og 1.031 pinnar.
Síðar um daginn hófu keppni þeir Jökull Byron Magnússon úr Keilufélagi Reykjavíkur og Aron Fannar Beinteinsson úr Keilufélagi Akraness. Jökull spilaði 1.099 pinna eða 183,17 í meðaltal en Aron Fannar spilaði best íslensku strákana í dag. Náði Aron Fannar1.264 pinnum eða 210,67 í meðaltal sem er hans persónulegt met í 6 leikjum. Þeir Jökull og Aron Fannar enduðu því með 196,92 í meðaltal og sitja í 18. sæti en Hlynur og Alexander eru í 24. sæti af 47 tvímenningum. Stórglæsilegur árangur hjá íslensku strákunum í dag.
Á morgun (mánudag) hefja svo keppni þær Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir og Natalía G Jónsdóttir, báðar frá Keilufélagi Akraness, en þær byrja kl. 09:00 að íslenskum tíma. Fylgjast má með keppninni á vef mótsins.
Þess má geta að Keilusamband Íslands hefur tekið að sér að sjá um Evrópukeppni ungmenna á næsta ári og fer það fram um páskana 2016. Verður það eitt fjölmennasta mót sem íslenska keilusamfélagið hefur staðið fyrir.