Stjórn KLÍ hefur ákveðið að boða til ársþings sambandsins sunnudaginn 22. maí n.k. kl. 12:00. Er þetta í 29. sinn sem þing sambandsins er haldið. Mun það fara fram í húsnæði Íþróttafélags Reykjavíkur að Skógarseli 12. Þingboð hefur verið sent út á aðildarfélög og íþróttabandalög sem hafa seturétt á þingi.
Seturétt á þingi hafa eftirtaldir aðilar skv. 5. grein laga KLÍ:
- Fulltrúar félaga sem mynda KLÍ – Fer eftir tölu keppenda í ársmeðaltali
- Einn fulltrúi stjórnar héraðssambands/íþróttabandalags
Mál sem leggja á fram fyrir þing þurfa að hafa borist stjórn KLÍ 4 vikum fyrir þing sem er þá sunnudagurinn 24. apríl n.k. Senda má mál fyrir þing á netfangið [email protected] eða [email protected]
Fyrir liggur að kjósa þarf nýjan formann KLÍ þar sem núverandi formaður, Jóhann Ágúst Jóhannsson mun ekki gefa kost á sér áfram. Einnig þarf að kjósa skv. lögum tvo aðalmenn til tveggja ára. Einar Jóel Ingason frá ÍA hefur auk þess gefið það út að hann hyggst láta af stjórnarsetu á komandi þingi og þarf þá að kjósa einn aðalmann til eins árs sem og skv. lögum 3 varamenn til eins árs.
Skjöl þings verða að þessu sinni höfð rafræn hér á vefnum og verða birt eftir 24. apríl þegar fyrir liggur hvaða mál verða lögð fram.
Samkvæmt þingboði mun fulltrúar með seturétt á þingi skiptast með eftirfarandi hætti:
Þingfulltrúar 29. þing KLÍ
Þingaðilar | Fjöldi iðkenda | Héraðs-sambönd | Þing-fulltrúar |
ÍR | 112 | 10 | |
KFA | 29 | 5 | |
KFR | 45 | 5 | |
KR | 3 | 3 | |
ÞÓR | 9 | 3 | |
Ösp | 15 | 3 | |
IBR | 1 | 1 | |
IA | 1 | 1 | |
IBA | 1 | 1 | |
Samtals | 213 | 3 | 32 |