Eins og kunnugt er þá er heimilt að hefja aftur keppni undir merkjum ÍSÍ eftir langt hlé vegna reglugerða um samkomutakmarkanir vegna farsóttar. Stjórn KLÍ fundaði í kvöld um hvernig best sé að hátta keppnishaldi til að eiga möguleika á að ljúka keppnistímabilinu 2020 til 2021 á skikkanlegum tíma. Ljóst er að áskoranir eru miklar til að geta haldið áfram keppni undir þessum kringumstæðum. Taka þarf tillit til ýmissa atriða svo sem fjöldatakmarkanir á keppnisstað, fyrirséð lok tímabils, reyna að gæta að sem mestu sanngirni í mjög svo ósanngjörnum aðstæðum og fleira.
Megin markmiðið ákvörðun stjórnar í kvöld er að koma þeim mótum á í dagskrá sem fyrir lágu s.s. ungmennakeppnum, liðakeppnum og einstaklingsmótum. Til að bæði ná að klára tímabilið á ásættanlegum tíma og hafa eitthvað svigrúm til breytinga hefur stjórn KLÍ því ákveðið að helminga núverandi deildarkeppni fyrir tímabilið. Bráðabirgðareglugerð verður sett á Íslandsmót liða 2020 til 2021.
Byrjun Íslandsmóts liða eftir hlé verður sem hér segir:
- Mánudaginn 18. janúar leika 2. deild kvenna og 3. deild karla þar sem frá var horfið
- Þriðjudaginn 19. janúar leikur 1. deild kvenna þar sem frá var horfið
- Laugardaginn 23. janúar hefst 2. deild karla hefst með leikjum Þórs hér fyrir sunnan þar sem frá var horfið
- Þriðjudaginn 26. janúar hefst 1. deild karla þar sem frá var horfið
Helstu mót framundan verða sem hér segir:
- Meistarakeppni ungmenna hefst laugardaginn 16. janúar
- Íslandsmót liða hefst aftur 18. janúar
- Bikarkeppni KLÍ hefst 20. og 24. janúar
- RIG 21 verður 2. til 4. febrúar (þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag)
- Íslandsmót einstaklinga með forgjöf verður 20. til 23. febrúar
- Íslandsmót öldunga verður 6. til 8. mars
- Íslandsmót einstaklinga verður 13. til 16. mars
- Íslandsmót unglinga verður 20. mars
- Úrslit bikarkeppni liða verða 6. apríl
- Lokaumferðir á Íslandsmóti liða verða 10. apríl
Allt er þetta með fyrirvara um ákvarðanir stjórnvalda sem hafa áhrif á keppnir innan ÍSÍ
Fjöldi umferða á Íslandsmóti liða verður því sem hér segir:
- deild kvenna – 8 lið. Skv. reglugerð á að spila þrisvar við andstæðing – Ákveðið að spila tvisvar alls 14 umferðir í stað 21
- deild kvenna – 6 lið. Skv. reglugerð á að spila fjórum sinnum við andstæðing – Ákveðið að spila tvisvar alls 10 umferðir í stað 20
- deil karla – 10 lið. Skv. reglugerð á að spila tvisvar við andstæðing – Ákveðið að spila einu sinni alls 9 umferðir í stað 18
- deil karla – 10 lið. Skv. reglugerð á að spila tvisvar við andstæðing – Ákveðið að spila einu sinni alls 9 umferðir í stað 18
- deild karla – 8 lið. Skv. reglugerð á að spila þrisvar við andstæðing – Ákveðið að spila tvisvar alls 14 umferðir í stað 21
Mikilvæg atriði fyrir keilara:
- fylgist með dagskrá KLÍ eins oft og mögulegt er
- bráðabirgðareglugerð um liðakeppnir mun heimila aðeins einn varamann pr. lið vegna fjöldatakmarkanna á keppnisstað í sóttvarnarreglugerð KLÍ
- frestanir eru ekki veittar nema í allra nauðsynlegustu tilfellum og verður horft stíft í reglugerð
- vert er að benda á uppfærða reglugerð um Íslandsmót liða þar sem heimilt er að hefja leik með 2 keppendum í liði
- mæti lið ekki til leiks gildir reglugerð um Íslandsmót liða, viðureign er töpuð
Von er á að dagskrá KLÍ verði uppfærð í vikunni þannig að allar viðureignir verða komnar inn – Fylgist vel með – Ítrekað er að allt er þetta með fyrirvara um reglugerðir um samkomutakmarkanir vegna sóttvarna.