Íslandsmóti félaga lauk í gær. ÍR-karlar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í opnum flokki fjórða árið í röð, en ÍR-konur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki í fyrsta sinn.
Á myndinni eru Linda Hrönn Magnúsdóttir, Sigurlaug Jakobsdóttir, Stefán Claessen, Katrín Fjóla Bragadóttir, Einar Már Björnsson, Róbert Dan Sigurðsson, Sigríður Klemensdóttir, Magnús Magnússon og Guðný Gunnarsdóttir.
Í öðru sæti í opnum flokki urðu KFA-ÍA og í því þriðja KFR-karlar.
Í öðru sæti í kvennaflokki urðu KFR-konur og í því þriðja ÍFH-konur.