Hjóna og parmóti KFR lauk í gærkvöldi, og unnu Bára og Tóti úrslitin sem voru mjög spennandi. Hér er mynd af pörunum sem léku í úrslitum. Sjá nánar hér.
En á undan var spiluð sjöunda og síðasta umferðin og með forgjöf urðu Einar og Vilborg í fyrsta sæti, Anna og Atli í öðru og Bergling og Sigurbjörn í þriðja. Án forgjafar urðu Lísa og Böddi í fyrsta, Bára og Tóti í öðru og Ragna og Bjarni í þriðja. Nánar um lokastöðuna hér.