Íslandsmóti einstaklinga 2025 í keilu lauk á mánudagskvöld 17.03.2025 í beinni útsendingu á Stöð2 Sport.
Þátttakan í mótinu var mjög góð þetta árið, en alls tóku þátt 24 konur og 34 karlar. Að þessu sinni var mótið tvískipt vegna fjölda og léku karlarnir forkeppni á Laugardeginum 15. og konurnar sína forkeppni á sunnudeginum 16. Bæði kyn léku síðan milliriðil seinna sama dag. Í kvennaflokki var yngsi keppandinn 12 ára og sú elsta 74 ára, en þess má geta að Jóna Gunnarsdóttir tók þátt í sínu 37 íslandsmóti í röð. Í karlaflokki létu ungmennin til sín taka þar sem 3 af 8 keppendum voru undir 19 ára aldri og sá yngsti einungis 14 ára.
Í kvennaflokki spiluðu til úrslita Olivia Clara Steinun Lindén ÍR, Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR og Katrín Fjóla Bragadóttir KFR. Linda féll fyrst úr leik og kepptu ær Olivia og Katrín til urslita. Íslandsmeistari kvenna 2025 varð Olivia Clara Steinunn Lindén.

Loka staða hjá konunum:
1.sæti Olivia Clara Steinunn Lindén ÍR
2.sæti Katrín Fjóla Bragadóttir KFR
3.sæti Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR
Í karla flokki var góð blanda af eldri og yngri sem spiluðu til úrslita en Ísak er 20 ára og Mikael 18 ára. Þeir sem spiluðu til úrslita voru Mikel Aron Vilhelmsson, Gunnar Þór Ásgeirsson og Ísak Birkir Sævarsson. Íslandsmeistari karla 2025 varð Mikael Aron Vilhelmsson KFR.
Lokastaða hjá körlum:
1.sæti Mikael Aron Vilhelmsson KFR
2.sæti Ísak Birkir Sævarsson ÍA
3.sæti Gunnar Þór Ásgeirsson ÍR