Síðastliðinn Föstudag luku íslensku keppendurnir keppni á Evrópumóti landsmeistara 2024.
Gunnar Þór og Hafdís Pála spiluðu 24 leiki í forkeppni og þar af voru 8 leikir í blönduðum tvímenning.
Fyrsta daginn spiluðu þau í hefðbundnu einstaklingssniði. Gunnar Þór spilaði fyrstu átta leikina á 1804 eða 225,5 að meðaltali á meðan Katrín spilaði 1397 og að meðaltali 174,6.
Þau spiluðu svo saman í blönduðum tvímenning þar sem þau lentu í 28. sæti af 34 þjóðum.
Gunnar Þór var með meðaltal upp á 202,9 og Hafdís Pála var með 168 í meðaltal.
Svo var komið að öðrum einstaklingsriðli og þar var Gunnar Þór með 1711 og meðaltal upp á 213,8 og Hafdís Pála lék 1345 og var með 168,1 í meðaltal.
Þar með lýkur þeirra þátttöku á þessu móti og var Gunnar Þór í 17. sæti með 214,1 meðaltal í 24 leikjum og Hafdís Pála var í 32. sæti með 170,2 í meðaltal í 24 leikjum.