Í dag, mánudag 3.apríl, hófst Evrópumót unglinga með tvímenning stráka.
Ásgeir Karl Gústafsson og Mikael Aron Vilhelmsson KFR byrjuðu kl 7 í morgun að íslenskum tíma.
Spiluðu þeir 6 leiki og voru í góðum gír í gegnum alla 6 leikina. Þeir voru í 5. sæti í sínum riðli en eftir seinni riðilin voru þeir komnir niður í 11. sæti samanlagt úr báðum riðlum. Flottur árangur hjá þeim félögum.
Skor var eftirfarandi:
Tvímenningur |
Leikur 1 |
Leikur 2 |
Leikur 3 |
Leikur 4 |
Leikur 5 |
Leikur 6 |
Samtals |
Meðaltal |
||
Ásgeir |
193 |
234 |
288 |
178 |
217 |
174 |
1284 |
214,00 |
||
Mikki |
192 |
179 |
247 |
237 |
157 |
207 |
1219 |
203,17 |
||
385 |
413 |
535 |
415 |
374 |
381 |
2503 |
208,58 |
11. sæti |
Svo kl 11:15 að íslenskum tíma stigu Matthías Leó Sigurðsson KFA og Tristan Máni Nínuson ÍR á brautirnar og spiluðu einnig 6 leiki.
Þeir náðu sér ekki alveg á strik í dag og lentu í 36. sæti eftir báða riðla
Skorið úr leikjunum hjá Matthíasi og Tristan:
Tvímenningur |
Leikur 1 |
Leikur 2 |
Leikur 3 |
Leikur 4 |
Leikur 5 |
Leikur 6 |
Samtals |
Meðaltal |
||
Matthías |
177 |
172 |
170 |
174 |
162 |
190 |
1045 |
174,17 |
||
Tristan |
158 |
156 |
172 |
151 |
224 |
224 |
1085 |
180,83 |
||
335 |
328 |
342 |
325 |
386 |
414 |
2130 |
177,50 |
36. sæti |
Efstu 4 tvímenningarnir komast áfram í undanúrslit og því ljóst að hvorugt lið komst þangað. Masterskeppnin lítur vel út fyrir Ásgeir og Mikael en liðakeppnin er næst hjá strákunum okkar.
Næst á dagskrá á Evrópumótinu er tvímenningur hjá stelpunum.
Spilað verður á morgun, þriðjudag, í tveimur riðlum og eru tvímenningarnir skipaðir svona:
Kl. 09:00 / 07:00 á íslenskum tíma
Alexandra og Viktoría Hrund
Kl. 13:15 / 11:15 á íslenskum tíma
Olivia Clara og Hafdís Eva
Streymi frá mótinu er hér:
Stöður og skor úr mótinu er að finna hér: