Í gær lauk úrslitum á Íslandsmóti einstaklinga 2023 með forgjöf. Voru það þau Viktor Snær Guðmundsson úr ÍR og Viktoría Hrund Þórisdóttir úr KFR sem sigruðu mótið í ár. Dagurinn hófst á því að undanúrslit 6 efstu úr hvorum flokki voru leikin en spilað var í svokölluðu Round Robin þ.e. allir við alla. Eftir það fóru 3 efstu úr hvorum flokki í úrslitaviðureignirnar og spilaður var einn leikur og féll sá sem lægsta skor var með út. Að lokum var hreinn úrslitaleikur milli þeirra tveggja sem eftir voru.
Mótið hófst með forkeppni s.l. laugardag og voru þá leiknir 6 leikir. Áfram var haldið með forkeppnina sunnudaginn 19. febrúar. Eftir forkeppnina fóru sína 12 efstu karlar og 12 efstu konur áfram í milliriðil sem leikinn var 21. febrúar. Undanúrslit og úrslit fóru síðan fram eins og segir í gær, en 6 efstu karlar og konur fóru áfram í undanúrslit og síðan foru 3 efstu í úrslitin.
Viktor Snær Guðmundsson úr ÍR sigraði Svavar Stein Guðjónsson úr KFR í úrslitum með 2261 gegn 230 en Ásgeir Karl Gústafsson úr KFR varð í 3. sæti hjá körlunum.
Viktoría Hrund Þórisdóttir úr KFR sigraði Ágústu Kristínu Jónsdóttur úr ÍA með 257 gegn 226 í úrslitum en Steinunn Inga Guðmundsdóttir úr ÍA varð í 3. sætinu.
Úrslit dagsins urðu annars þessi.
Karlar
Sæti | Nafn | Félag | Forgjöf | Flutt | Skor | Auka- pinnar | Sam- tals | Meðal- tal | Mism. í 3. sæti | |
1 | Ásgeir Karl Gústafsson | 1 | KFR | 22 | 4.287 | 1188 | 40 | 5.515 | 238,04 | 118 |
2 | Viktor Snær Guðmundsson | 2 | ÍR | 76 | 4.256 | 1111 | 80 | 5.447 | 233,35 | 50 |
3 | Svavar Steinn Guðjónsson | 3 | KFR | 50 | 4.111 | 1226 | 60 | 5.397 | 232,04 | 0 |
4 | Matthías Ernir Gylfason | 4 | KFR | 45 | 4.079 | 1192 | 80 | 5.351 | 229,17 | -46 |
5 | Matthías Leó Sigurðsson | 5 | KFA | 37 | 4.145 | 1032 | 20 | 5.197 | 225,09 | -200 |
6 | Ásgeir Henningsson | 6 | ÍR | 37 | 4.046 | 999 | 20 | 5.065 | 219,35 | -332 |
Konur
Sæti | Nafn | Félag | Forgjöf | Flutt | Skor | Auka- pinnar | Sam- tals | Meðal- tal | Mism. í 3. sæti | |
1 | Ágústa Kristín Jónsdóttir | 1 | KFA | 53 | 4.128 | 1089 | 60 | 5.277 | 226,83 | 148 |
2 | Viktoría Hrund Þórisdóttir | 2 | KFR | 67 | 4.043 | 1080 | 60 | 5.183 | 222,74 | 54 |
3 | Steinunn Inga Guðmundsdóttir | 3 | KFA | 68 | 4.005 | 1084 | 40 | 5.129 | 221,26 | 0 |
4 | Ragna Guðrún Magnúsdóttir | 4 | KFR | 51 | 3.971 | 1072 | 60 | 5.103 | 219,26 | -26 |
5 | Bára Líf Gunnarsdóttir | 5 | ÍR | 80 | 3.879 | 1025 | 60 | 4.964 | 213,22 | -165 |
6 | Snæfríður Telma Jónsson | 6 | ÍR | 46 | 3.873 | 1016 | 20 | 4.909 | 212,57 | -220 |