11. boðsmót Katar fyrir ungmenni yngri en 21 árs í keilu fer fram þessa vikuna og er Ísland meðal þátttakanda.
Formleg æfing fór fram í gær 14. febrúar og byrjar einstaklingkeppnin í dag 15. febrúar.
Tvímenningur og liðakeppnin er á fimmtudag 16. febrúar.
Masterskeppnin er svo á laugardag.
Þjálfararnir Mattias Möller og Katrín Fjóla Bragadóttir eru með ungmennunum og er liðið skipað svona:
Stelpur:
- Alexandra Kristjánsdóttir KFR
- Elva Rós Hannesdóttir KFR
- Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir KFR
- Málfríður Jóna Freysdóttir KFR
Strákar:
- Aron Hafþórsson KFR
- Hinrik Óli Gunnarsson ÍR
- Ísak Birkir Sævarsson ÍA
- Mikael Aron Vilhelmsson KFR