Gleðilegt ár Keilarar.
Í næstu viku hefst keppni á ný hjá okkur í keilunni. Vegna gildandi sóttvarnarreglna þá þurfa keppendur að taka tillit til þeirrar hólfa skiptingar sem er sett upp í Egilshöll. Hólfin eru brautir 1 – 6, brautir 7 – 14 og brautir 15 – 22. Þar sem samkvæmt sóttvarnarreglum þurfa áhorfendur að vera í sætum og aðskildir frá keppendum, þessu skilyrði er bara ekki hægt að uppfylla og því er það ósk okkar að áhorfendur sitji heima og fylgist með á Lane Talk. Það þíðir að áhorfendabann er í gildi að svo stöddu.