Nú er keppni lokið hjá okkar piltum, en í dag var leiknir 6 leikir í einstaklingskeppni, en best lék:
Aron Hafþórsson 1.138
Hinrik Óli Gunnarsso 1.061
Mikael Aron Vilhelmsson 1.037
Matthías Leó Sigurðsson 1.020
Alls kepptu 74 piltar á EYC2021 þetta árið og sá sem spilaði best alla dagana er heimamaður Kenneth Ramos, en hann spilaði 4.328 í 18 leikjum eða 240,4 að meðaltali. Okkar piltar stóðu sig vel og meigi þeir eiga góða heimferð.
Í heildina var árangur okkar pilta eftirfarandi:
Aron Hafþórsson 3.576 þ.e. 198,7 meðaltal og 37 sæti
Hinrik Óli Gunnarsson 3.342 þ.e. 185,7 meðaltal og 57 sæti
Mikael Aron Vilhelmsson 3.231 þ.e. 179,5 meðaltal og 64 sæti
Matthías Leó Sigurðsson 2.968 þ.e. 164,9 meðaltal og 72 sæti