Muna að skrá sig á réttan flokk,
Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur mánudaginn 15. febrúar klukkan 18:00.
Skráning hér
Olíuburður í mótinu er: Chromium 6742
Forkeppni 20 & 21 febrúar 2020
Spilaðir eru 8 leikir í tveimur 4 leikja blokkum.
Keppni byrjar kl. 09:00 Laugardag og sunnudag
Verð í forkeppni kr. 10.000,-
Nú verður ekki posi á staðnum.
Hægt verður að greiða með Pening á staðnum eða að leggja inn á reikning hjá KLÍ og senda staðfestingu á greiðslu á [email protected] eða koma með útprentun á kvittun í mótið
Keilusamband Íslands,KLÍ
Kennitala 460792-2159
0115-26-010520
12 efstu karlarnir og 12 efstu konurnar halda áfram í milliriðil.
Milliriðill karla
12 efstu keppendurnir spila 4 leiki,
6 efstu keppendurnir komast í undanúrslit og fylgir skorið úr forkeppninni og milliriðlinum.
Milliriðill kvenna
12 efstu keppendurnir spila 4 leiki,
6 efstu keppendurnir komast í undanúrslit og fylgir skorið úr forkeppninni og milliriðlinum.
Milliriðill mánudaginn 22.feb kl 19:00
Spilaðir eru 4 leikir.
Verð í milliriðil kr. 5.500,-
Efstu 6 karlar og 6 konur halda áfram í undanúrslit.
Undanúrslit þriðjudaginn 23.feb kl 19:00
Verð í undanúrslit kr. 5.500.
Undanúrslit:
Allir keppa við alla, einfalda umferð.
Á stigin fyrir leikina bætast bónusstig þannig:
Fyrir sigur í leik fást 20 bónusstig
fyrir jafntefli í leik fást 10 bónusstig
Að loknum þessum leikjum fara 3 efstu keppendurnir í úrslit.
Úrslit spiluð á eftir undanúrslitum
Úrslit:
Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu manna/kvenna
Allir leika einn leik og fellur úr leik sá sem hefur lægsta skorið.
Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari einstaklinga.
Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur.
Ef enn er jafnt skal endurtaka þetta þar til úrslit liggja fyrir.
Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimmtudaginn 18. febrúar klukkan 18:00.
Mótanefnd KLÍ
Mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga ef þurfa þykir.