Eins og flestum ætti að vera kunnugt verður Norðurlandamót ungmenna U23 haldið hér á landi í næsta mánuði. Landsliðsþjálfari ungmennalandsliða hefur valið eftirfarandi leikmenn í æfingahóp fyrir mótið. Stefnt er að því að tilkynna endanlegan hóp 4 drengja og 4 stúlkna innan skamms.
Hópurinn samanstendur af:
Stúlkur
- Alexandra Kristjánsdóttir ÍR
- Eyrún Ingadóttir KFR
- Elva Rós Hannesdóttir ÍR
- Hafdís Eva Laufdal Pétursdóttir ÍR
- Jóhanna Ósk Guðjónsdóttir ÍR
- Málfríður Jóna Freysdóttir KFR
- Sara Bryndís Sverrisdóttir ÍR
Drengir
- Alexander Halldórsson KFR
- Aron Fannar Benteinsson KFR
- Hlynur Örn Ómarsson ÍR
- Jóhann Ársæll Atlason ÍA
- Steindór Máni Björnsson ÍR
Landsliðsþjálfari er Guðmundur Sigurðsson og honum til aðstoðar verður Jónína Björg Magnúsdóttir.
Mótið fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll dagana 13. til 16. nóvember.