Í dag fór fram tvímenningur stúlkna á Evrópumóti ungmenna U18 í Álaborg Danmörku. Fyrst kepptu þær Elva Rós Hannesdóttir úr ÍR og Helga Ósk Freysdóttir úr KFR. Spiluðu þær leikina 6 á samtals 1.995 pinnum eða 166,2 í meðaltal sem skilaði þeim í 12. sæti í sínum riðli. Elva spilaði best 227 leik í þriðja leik dagsins. Næst spiluðu þær Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir úr Þór og Málfríður Jóna Freysdóttir úr KFR. Náðu þær samtals 1.879 pinnum í leikjunum 6 eða 156,6 og enduðu þær í 15. sæti síns riðils.
Á morgun fer fram keppni í liðakeppni beggja kynja. Strákarnir hefja leik um kl. 07 og stelpurnar um kl. 11:15. Allar upplýsingar um mótið má nálgast á vefsíðu þess og íslenski hópurinn er svo með sér Fésbókarsíðu þar sem ýmsar örfréttir rata inn.