Ísland keppir sem fyrr á Evrópumóti ungmenna U18 sem fram fer nú í 31. sinn og verður að þessu sinni í Álaborg í Danmörku. Flogið var út á laugardagsmorgun og fóru 8 ungmenni ásamt þjálfurum. Mótafyrirkomulag er líkt og undanfarin ár, keppt í einstaklingskeppni, tvímenningi, leiðakeppni 4 manna og svo er að lokum keppt í Masters keppni þar sem meðaltalshæstu einstaklingarnir keppa.
Í dag hefst mótið með opinberum æfingum og svo setningarhátíð. Fylgjast má með krökkunum á vef mótsins og einnig ætla þjálfarar að setja inn upplýsingar á Fésbókarsíðu hópsins.
Þau sem keppa fyrir Íslands hönd eru:
Piltar
- Ágúst Ingi Stefánsson ÍR
- Jóhann Ársæll Atlason ÍA
- Ólafur Þór Ólafsson Hjaltalín Þór
- Steindór Máni Björnsson ÍR
Stúlkur
- Elva Rós Hannesdóttir ÍR
- Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir Þór
- Helga Ósk Freysdóttir KFR
- Málfríður Jóna Freysdóttir KFR
Þjálfarar eru
- Guðmundur Sigurðsson ÍA
- Stefán Claessen ÍR