Þrímenningskeppni HM hélt áfram í gær í Las Vegas á Heimsmeistaramótinu í keilu.
Leiknir voru seinni þrír leikirnir í karla- og kvennaflokki og gekk upp og ofan hjá okkar fólki.
Í kvennaflokki léku saman:
Ísland 1
Katrín Fjóla Bragadóttir
Linda Hrönn Magnúsdóttir
Dagný Edda Þórisdóttir
Ísland 2
Guðný Gunnarsdóttir
Bergþóra Rós Ólafsdóttir
Hafdís Pála Jónasdóttir
Ísland 1 lenti í erfiðleikum með brautirnar og spiluðu talsvert lakar en í gær. Þær spiluðu 1.489 eða 165,4 í meðaltal. Enduðu þær í 47. sæti eftir að hafa verið í 40. sæti eftir fyrri daginn. Sama má segja um Ísland 2, það gekk erfiðlega hjá þeim og spiluðu þær 1.460 sem gera 162.2 í meðaltal. Þær urðu í 52. sæti og féllu því um eitt sæti frá í gær. Það var Linda Hrönn Magnúsdóttir sem spilaði best af íslensku stelpunum í dag, 556.
Í karlaflokki léku saman:
Ísland 1
Jón Ingi Ragnarsson
Arnar Davíð Jónsson
Hafþór Harðarson
Ísland 2
Gunnar Þór Ásgeirsson
Gústaf Smári Björnsson
Skúli Freyr Sigurðsson
Ísland 1 byrjaði rólega í dag en unnu á eftir því sem leið á. Þeir spiluðu 1.762 sem gera 195,78 í meðaltal og skilaði það þeim í 41. sæti. Þeir hoppuðu því um 14 sæti frá því í gær. Ísland 2 náði aldrei að finna taktinn í dag. Brautirnar reyndust erfiðar og spiluðu þeir 1.494 sem gera 166 í meðaltal. Þeir enduðu í 61. sæti eftir að hafa átt frábæran fyrri dag þar sem þeir voru í 27. sæti.
Hafþór Harðarson spilaði best strákana í dag eð 598 en annars voru strákarnir í Ísland 1 mjög jafnir í dag því Arnar Davíð var með 585 og Jón Ingi 579.
Fjögur efstu lið karla og kvenna komust í úrslit sem leikin verða á sunnudag. Eftirtalin lið komust í úrslit:
Konur:
USA með 212,2 í meðaltal
Þýskaland með 210,3
Taiwan með 206,7
Indonesía með 206,8
Karlar:
Japan með 214,9 í meðaltal
Hong Kong með 211,6
Finland með 210,2
Taiwan með 208,7
Næstu tvo daga verður leikið í 5 manna liðum á HM í Las Vegas. Allar upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu þess. Þar má sjá stöður í keppnum, stöður leikja í rauntíma og beinar útsendingar frá ákveðnum brautum sem og upptökur úr keppninni.