Í dag fór fram ársþing Evrópska Keilusambandsins, ETBF, í Vín í tengslum við Evrópumót landsmeistara.
Valgeir Guðbjartsson var endurkjörinn í stjórn sambandsins og mun því sitja í stjórn ETBF næstu 4 ár.
Það er keilunni á Íslandi mikill fengur að hafa Valgeir í stjórn ETBF og heiður fyrir Valgeir að vera endurkjörinn.
Valgeir hefur setið í stjórn ETBF síðan 2005 og er varamaður í stjórn Keilusambands Íslands.