Í dag voru leiknir tveir 300 leikir á EM í Olomouc.
Fyrst var það Glenn Robson frá Wales sem spilaði 300 en það gerði hann í leik 5. Það var svo Catalin Gheorghe frá Rúneníu sem spilaði seinni leikinn en það gerði hann í leik 7. Frábær árangur hjá þeim báðum og þess má geta að þeir eru báðir komnir áfram í 16 manna úrslit, eru þó ekki fyrir ofan okkar mann, Arnar Davíð. Catalin er í 12. sæti og Glenn er í 15. sæti.