Hafþór Harðarson ÍR er núna í Shanghai í Kína að keppa á Heimsbikarmóti einstaklinga í keilu, AMF Wolrd Cup.
Þetta er eitt sterkasta einstaklingsmót í keilu sem hægt er að komast á.
SportTv.is er á staðnum og flytur fréttir af kappanum daglega á meðan mótið er. Einnig er von á innslögum í íþróttafréttum RÚV. Fyrsta viðtalið við Hafþór er komið á heimasíðu SportTV.
Hægt er að fylgjast með framvindu mála á Facebook síðu mótsins og á heimasíðu mótsins