Um helgina fór fram fyrsta umferð í Meistarakeppni ungmenna í keilu. Keppt var í Keiluhöllinni Egilshöll. Alls tóku 47 ungmenni þátt í þessari umferð og var spilamennskan mjög góð. Leikið var á öllum brautum hússins og gekk mótið í alla staði mjög vel.
Andri Freyr Jónsson KFR var með hæstu seríu mótsins eða 1.354 pinna í 6 leikjum sem gera 225.7 í meðaltal.Elva Rós Hannesdóttir ÍR setti Íslandsmet í 3. flokki unglinga í 2, 3, 4, 5 og 6 leikjum en serían hennar var 185 – 198 – 200 – 143 – 165 og 163 eða samtals 1.054 sem gera 175,7 í meðaltal. Óskum Elvu Rós til hamingju með árangurinn.
Hér má sjá myndir af sigurvegurum í öllum flokkum:

1.flokkur pilta Alexander ÍR- Andri Freyr KFR- Hlynur Örn ÍR

1.flokkur stúlkna Hafdís Pála KFR- Katrín Fjóla KFR

2.flokkur pilta Gunnar Ingi KFA-Jökull Byron KFR-Þorsteinn Hanning ÍR

2.flokkur stúlkna María Ragnhildur KFR-Jóhanna KFA- Helga Ósk KFR

3.flokkur pilta Jóhann Ársæll KFA -Steindór Máni ÍR – á myndina vantar Ólaf Svein KFA

3.flokkur stúlkna Ardís KFR -Elva Rós ÍR -Málfríður KFR

4.flokkur stúlkna Elísabet Elín ÍR- Sara Bryndís ÍR- Hafdís Eva ÍR