Í kvöld fór fram úrslitakeppni í Íslandsmóti öldunga 2015. Íslandsmeistarar urðu þau Ragna Matthíasdóttir úr Keilufélagi Reykjavíkur (KFR) og Þórarinn Már Þorbjörnsson úr ÍR. Ragna sigraði Lindu Hrönn Magnúsdóttur fráfarandi Íslandsmeistara öldunga í tveim leikjum 170 pinnar gegn 151 og svo 206 gegn 185. Í þriðja sæti varð svo Helga Sigurðardóttir úr KFR. Þórarinn sigraði Davíð Löve úr KR í þrem leikjum 135 pinnar gegn 202, 185 gegn 162 og svo 205 gegn 180. Í þriðja sæti varð svo Magnús Reynisson úr KR.
Sjá nánar úrslit kvenna og úrslit karla.