1. umferð Meistarakeppni ungmenna á keppnistímabilinu 2013 – 2014 fer fram á morgun laugardaginn 28. september í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og hefst keppni kl. 9:00. Að þessu sinni eru 48 ungmenni skráð til keppni á mótinu frá þremur keilufélögum, 28 keppendur frá Keiludeild ÍR og 20 keppendur frá Keilufélagi Reykjavíkur og Keilufélagi Akraness.
Í Meistarakeppni ungmenna taka þátt börn og ungmenni, 20 ára og yngri sem æfa hjá keilufélögunum og er skráning í mótið hjá þjálfurum félaganna. Keppni í Meistarakeppni ungmenna í keilu fer fram u.þ.b. mánaðarlega yfir veturinn, sjá leikdaga í dagskrá
Keppt er í fjórum aldursflokkum:
1. flokkur 18 – 19 – 20 ára
2. flokkur 15 – 16 – 17 ára
3. flokkur 12 – 13 – 14 ára
4. flokkur 9 – 10 – 11 ára
Miða skal við afmælisár, en keppendur halda sínum flokki fram yfir áramótin og til loka móts.
Raðað er í sæti eftir heildarskori í hverjum flokki í hverri umferð. Stig eru gefin fyrir öll sæti í hvert skipti. Stigagjöf er eftirfarandi:
1. sæti hlýtur 12 stig
2. sæti hlýtur 10 stig
3. sæti hlýtur 8 stig
4. sæti hlýtur 7 stig
5. sæti hlýtur 6 stig
6. sæti hlýtur 5 stig
7. sæti hlýtur 4 stig
8. sæti hlýtur 3 stig
9. sæti hlýtur 2 stig
10. sæti og neðar hlýtur 1 stig
Sjá nánar í regluferð um Meistarakeppni ungmenna