Keppni á Opna Reykjavíkurmótinu í keilu fer fram í Keiluhöllinni Egilshöll dagana 7. og 8. september n.k. og hefst keppni kl. 9:00 báða dagana. Spilaðir verða 9 leikir í forkeppni, 6 á laugardag og 3 á sunnudag og komast fjórir efstu (karlar og konur) áfram í úrslit.
Skráning í mótið er á netfangið [email protected] og lýkur fimmtudaginn 5. september, kl. 23:00. Olíuburður í mótinu verður 2013 San Marino Open 41 fet. Verð er kr. 4.500. Sjá nánar í auglýsingu
Reykjavíkurfélögin
Forkeppnin hefst laugardaginn 7. september kl 9:00 þar sem spilaðir eru 6 leikir. Sunnudaginn 8. september kl 9:00 eru spilaðir 3 leikir í forkeppni og úrslitin strax á eftir. Úrslitin eru þannig að keppendur í 1. og 4. sæti og 2. og 3. sæti eftir forkeppninni leika saman. Sá/sú sem fyrr vinnur tvo leiki heldur áfram. Sigurvegararnir úr leikjunum leika svo innbyrðis og sá/sú er fyrr vinnur tvo leiki hlýtur titilinn Reykjavíkurmeistari einstaklinga. Þeir sem tapa spila innbyrðis um þriðja sætið og sigrar sá/sú er fyrr vinnur tvo leiki.
Mótshaldari áskilur sér rétt til breytinga í forkeppninni.
Helga Sigurðardóttir KFR og Hafþór Harðarson ÍR eru Reykjavíkurmeistarar í keilu 2012.