Það var lið ÍR-KLS sem bar sigur úr býtum í úrslitum Deildarbikars liða 2012 – 2013 sem fram fóru í Keiluhöllinni Egilshöll miðvikudaginn 3. apríl. Leikmenn ÍR-KLS mættu mjög ákveðnir til keppni, unnu alla sína leiki og fengu samtals 10 stig og endurheimtu þar með titilinn sem þeir unnu árin 2009 – 2011. Í 2. sæti urðu KFR-Lærlingar með 8 stig og ÍR-PLS varð í 3. sæti með 6 stig.
Á myndinni eru liðsmenn ÍR-KLS þeir Andrés Páll Júlíusson, Magnús Magnússon og Arnar Sæbergsson.
Úrslit keppninnar urðu sem hér segir:
1. sæti ÍR-KLS 10 stig
2. sæti KFR-Lærlingar 8 stig
3. sæti ÍR-PLS 6 stig
4. sæti ÍA-W 4 stig
5. sæti ÍA 2 stig
6. sæti KR-A 0 stig
Sjá nánar deildarbikar liða