Keppni á Reykjavíkurmóti einstaklinga með forgjöf lauk í dag. Reykjavíkurmeistarar 2012 eru Linda Hrönn Magnúsdóttir ÍR og Guðlaugur Valgeirsson KFR og er þetta í fyrsta sinn sem þau vinna titilana.
Linda Hrönn vann Báru Ágústsdóttur KFR í úrslitum og Guðlaugur vann Hafþór Harðarson ÍR.
Í þriðja sæti hjá konunum varð svo Hafdís Pála Jónasdóttir KFR og Hörður Einarsson KFA hjá körlunum. Nánar hér lokastaða – úrslit.