Skráning er hafin í Íslandsmót einstaklinga með forgjöf. Skráning er hér.
Sjá nánar í auglýsingu.
Notaðir verða tveir olíuburðir einn langur og einn stuttur.
Útfærslan á mótinu er eftirfarandi:
Forkeppni:
Fyrri dagur í stuttri olíu (34 fet) og seinni dagurinn í langri olíu (43 fet)
Milliriðill:
Borið á til skiptis þannig að það er löng olía á vinstri braut og stutt olía á hægri braut og leikið á báðum brautum.
Undanúrslit:
Leikið maður á mann, borin á olía eins og í milliriðli, þ.e. löng olía á vinstri braut og stutt á hægri leikið á báðum brautum.
Úrslit:
Olía borin á eins og í milliriðli og undanúrslitum, þ.e. löng á vinstri og stutt á hægri, sá sem er hærri þarf að velja á hvorri brautinni er byrjað að spila og hvor byrjar.
Nánari upplýsingar hjá [email protected].