Keilusamband Íslands hefur valið eftirfarandi aðila sem Íþróttamann og Íþróttakonu ársins í keilu árið 2010. Þau munu svo taka við viðurkenningum frá ÍSÍ, þann 5. janúar 2011.
Kvenn keilari ársins: Dagný Edda Þórisdóttir, Keilufélagi Reykjavíkur. Dagný hefur lagt stund á keilu í 18 ár og leikið bæði með unglingalandsliði og kvennalandsliði Íslands. Á árinu varð hún Íslandsmeistari einstaklinga og lék einngi fyrir Íslands hönd á Evrópumóti landsmeistara.