Núna áðan kláruðum við fyrri seríuna í trios og eru batamerki á þessu hjá okkur, Lísa átti í vandræðum með fyrsta leikinn en síðan var allt mikið betra. Alda náði að enda með 12 yfir pari og við leikum seinni seríuna (mið olía) í fyrramálið kl. 9. Við vorum í sólbaði og það er betra að vera í sólinni seinnipartinn þá er bara 34-5 gráður.
stelpurnar spiluðu svona:
Alda: 217-193-202 = 612
Guðný: 176-195-200 = 571
Lísa: 125-206-170 = 501
byðjum að heilsa öllum
Hörður Ingi
Las Vegas