komið þið sæl, við vorum að klára official practice í algjörlega klikkuðum sal, 60 brautir og hefur salurinn verið í notkun í 6 mánuði og verður tekinn niður strax eftir að mótið er búið(svona er nú lífið í henni Ameríku). Æfingin gekk bara nokkuð vel og voru stelpurnar ánægðar. Við erum að fara á opnunar hátíðina núna eftir klukkutíma. Á morgun kl. 13.30 byrjar Alda á einstaklingskeppninni og Guðný og Lísa byrja svo kl. 18.00(staðartími) spilað verður í stuttri olíu,. Á miðvikudaginn verður svo spilaður tvímenningur í mið olíu. Það er enn svaka heitt og varla hægt að vera úti.
meira seinna og það byðja allir að heilsa
Hörður Ingi
Las Vegas