Hér er mynd af bronsverðlaunahöfunum sem tekin er af Seiju Lankinen frá finnska keilusambandinu.
Aldeilis frábær árangur hjá strákunum.
Í dag var fyrri dagur í liðakeppninni og eru strákarnir í 18. sæti af þeim 44 þjóðum sem eru með fult lið.
En staða einstakra manna er eftirfarandi að loknum 15 leikjum (af 194 keppendum):
- Hafþór Harðarson í 12. sæti með 3164 stig
- Róbert Dan Sigurðsson í 27. sæti með 3044
- Stefán Claessen í 118. sæti með 2827
- Jón Ingi Ragnarsson í 131. sæti með 2796
Hjá stúlkunum er staðan þannig (af 135 keppendum):
- Magna Ýr Hjálmtýrdóttir í 103.sæti með 2630 stig
- Karen Rut Sigurðardóttir í 125. sæti með 2284
Endilega kíkið inná heimasíðu mótsins www.2008wyc.com og skoðið hvað munar litlu á keppenum og sætaröðun. Krakkarnir spila svo í stuttri olíu á morgun, sem verður þeim vonandi auðveldari. Stelpurnar byrja á hádegi að íslenskum tíma og strákarnir klukkan 16:30. Nú er bara að fylgjast með á netinu og ÁFRAM ÍSLAND.