Þá er lokið keppni í þriggja manna liðum. Stelpurnar okkar enduðu í 27. og 34. sæti. Evrópumeistarar urðu gestgjafarnir Danir.
Í einstaklingskeppninni er Magna Ýr enn efst af stelpunum með 187.4 í meðaltal. Á morgun hefst svo liðakeppnin og leika okkar stelpur í fyrri riðlinum og byrja að spila klukkan 7 að íslenskum tíma. Mjög gaman er að fylgjast með keppninni í beinni á „online scoring“ sem má tengjast í gegnum heimasíðu mótsins www.ewc2008.eu/