16 liða úrslit Bikarkeppni KLÍ fóru fram í gær, fimmtudaginn 18. janúar og fóru allir leikir 3 – 0. Í 8 liða úrslitum sem fara fram fimmtudaginn 15. febrúar leika KFR-JP-kast, KFR-Lærlingar, ÍR-KLS, KR-B, KR-A, KFR-Stormsveitin og ÍR-A. En leikur ÍR-L og ÍR-PLS hefur enn ekki farið fram og því ekki enn ljóst hvort liðið kemst áfram í 8 liða úrslitin.
KR-A spilaði best allra liða 2540 þegar þeir lögðu félaga sína í KR-C örugglega þrátt fyrir ágæta spilamennsku KR-C sem spilaði 2328. ÍR-KLS var einnig að spila mjög vel eða 2480 og unnu með því KFK-Keiluvini sem spiluðu 2271.
Bikarmeistararnir frá fyrra ári KFR-Lærlingar eru ennþá með í baráttunni.
Spilamennska var há og margar 600 seríur spilaðar. Magnús Magnússon KR-A spilaði best með 729, Arnar Sæbergsson ÍR-KLS mætti aftur til leiks og spilaði 677, Andrés Páll Júlíusson KR-A spilaði 669, Valgeir Þórisson KFR-Stormsveitinni spilaði 668, Ásgrímur Helgi Einarsson KFK-Keiluvinum spilaði 656, Árni Geir Ómarsson ÍR-KLS spilaði 650, Ævar Olsen KR-C spilaði 647 og Jón Ingi Ragnarsson KFR-Lærlingum spilaði 637.
Bikarkeppni KLÍ – 16 liða úrslit | |||||
Lið | Skor | Leikur 1 | Leikur 2 | Leikur 3 | Alls |
ÍR-Línur | 0 | 589 | 626 | 604 | 1819 |
KFR-JP-Kast | 3 | 712 | 756 | 727 | 2195 |
ÍR-P | 0 | 636 | 668 | 565 | 1869 |
KFR-Lærlingar | 3 | 758 | 847 | 717 | 2322 |
KFK-Keiluvinir | 0 | 781 | 761 | 729 | 2271 |
ÍR-KLS | 3 | 830 | 827 | 823 | 2480 |
KFK-Keila.is | 0 | 652 | 628 | 679 | 1959 |
KR-B | 3 | 656 | 847 | 744 | 2247 |
KR-A | 3 | 881 | 844 | 815 | 2540 |
KR-C | 0 | 775 | 773 | 780 | 2328 |
KFA-ÍA | 0 | 640 | 655 | 680 | 1975 |
ÍR-A | 3 | 661 | 822 | 709 | 2192 |
ÍR-NAS | Mætti ekki til leiks | ||||
KFR-Stormsveitin | |||||
ÍR-L | Leiktími hefur ekki verið ákveðinn. | ||||
ÍR-PLS |