Leiknir voru 5 leikir í 1. deildar karla í gærkvöldi. Nýliðarnir í deildinni, KFK-Keiluvinir og ÍR-L öttu kappi og fóru ÍR-L með sigur af hólmi, 14,5 gegn 5,5, sem skilaði þeim í 3.-4. sæti með ÍR-A, sem sigruðu KFR-Stormsveitina einnig 14,5 gegn 5,5. Þá sigruðu KR-B JP-Kast með 15,5 gegn 4,5 stigum og Íslandsmeistarar ÍR-KLS sigruðu KFR-Lærlinga með 13 stigum gegn 7. Það eru ÍR-PLS sem sitja nú einir í efsta sæti deildarinnar með 17 stig eftir sigur gegn ÍR-P, sem tóku 3 stig af ÍR-PLS.
Staðan í deildinni í deildinni er þessi:
Sæti | Lið | L | Skor liðs | Skor móth. | Stjörnur | Stig |
1 | ÍR-PLS | 1 | 2.284 | 1.993 | 0 | 17,0 |
2 | KR-B | 1 | 2.283 | 2.157 | 0 | 15,5 |
3 | ÍR-L | 1 | 1.891 | 1.391 | 0 | 14,5 |
4 | ÍR-A | 1 | 2.172 | 2.007 | 0 | 14,5 |
5 | ÍR-KLS | 1 | 2.452 | 2.211 | 0 | 13,0 |
6 | KFR-Lærlingar | 1 | 2.211 | 2.452 | 0 | 7,0 |
7 | KFR-Stormsveitin | 1 | 2.007 | 2.172 | 0 | 5,5 |
8 | KFK-Keiluvinir | 1 | 1.391 | 1.891 | 0 | 5,5 |
5 | JP-Kast | 1 | 2.157 | 2.283 | 0 | 4,5 |
6 | ÍR-P | 1 | 1.993 | 2.284 | 0 | 3,0 |
7 | ÍA-A | 0 | 00 | 00 | 0 | 0,0 |
8 | KR-A | 0 | 00 | 00 | 0 | 0,0 |
Verið er að leggja loka hönd á breytingu tölvukerfa KLÍ vegna nýja fyrirkomulagsins, og er ítarlegri staða væntanleg bráðlega.